Leikstjórnandinn, Antoine Óskar Pantano gekk á dögunum í raðir FH frá uppeldisfélagi sínu Gróttu. Antoine hefur leikið stórt hlutverk með Gróttu undanfarin ár, fyrst í Olís-deild karla og á síðustu leiktíð lék hann með liðinu í Grill66-deildinni. FH-ingar hafa verið lunknir að sækja unga og efnilega leikmenn frá liðum sem hafa ekki náð að festa sig í sessi í Olís-deildinni í gegnum árin. Handkastið heyrði í Antoine á dögunum og spurði hann út í ákvörðunina að hann hafi valið að fara í FH á þessum tímapunkti. ,,Tilfinningin að vera orðinn leikmaður FH er frábær. Þetta er auðvitað risa skref fyrir mig persónulega og ég er gríðarlega spenntur fyrir komandi tímum þar." ,,FH er auðvitað topp klúbbur með frábæra aðstöðu, þjálfara og allt þar í kring. Þegar þeir heyrðu í mér þá er erfitt að segja nei við svona tækifæri. Ég sé möguleika fyrir mig að fara lengra sem leikmaður hjá FH," sagði Antoine sem segir að fleiri félög hafi sýnt honum áhuga. ,,En mér leist best á FH." Antoine viðurkennir að tímabilið með Gróttu hafi verið upp og niður en liðið endaði í 2.sæti deildarinnar með jafn mörg stig og topplið Víkings. Liðið tapaði hinsvegar í undanúrslitum umspilsins gegn Herði 2-0. ,,Stigasöfnun gekk bara nokkuð vel hjá okkur en spilamennskan var ekkert endilega sú besta. Svo var auðvitað bara ekkert eðlilega svekkjandi að tapa 2-0 gegn Herði þegar við ætluðum okkur upp. Þetta var samt góður hópur og í heildina skemmtilegt tímabil." En hvernig verður hlutverk hans í FH á næsta tímabili? ,,Það verður auðvitað bara að koma í ljós, það eru mjög flottir leikmenn þarna en ég held við munum finna góða róteringu á þessu. Svo er það bara reyna koma með góðann karakter inn í liðið." ,,FH var náttúrulega mjög nálægt því að landa þeim stóra í vetur þannig það er kominn sterkur grunnur þarna en mér líst ótrúlega vel á leikmennina, þjálfara og klúbbinn í heild sinni. Ég er bara spenntur að fara koma mér inn í þetta," sagði Antoine að lokum í samtali við Handkastið.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.