Carlos lýkur sérstökum kafla í sínu lífi
Egill Bjarni Friðjónsson

Spánski þjálfarinn, Carlos Martin Santos sem hætti á dögunum sem þjálfari karlaliðs Selfoss skrifaði færslu á Facebook-síðu sína á dögunum þar sem hann þakkaði Selfyssingum fyrir tímann sinn hjá félaginu en hann þjálfaði liðið í þrjú ár.

Ekki hefur verið gefið út hvað tekur við hjá Carlosi en hann hefur verið orðaður við þjálfarastarf í Svíþjóð og víðar í Evrópu.

Carlos var valinn þjálfari ársins hér á Handkastinu en hann tryggði Selfoss áfram veru í deild þeirra bestu sem nýliðar en margir gárungar höfðu spáð því að Selfoss myndu enda á botni deildarinnar og innbyrða virkilega fá stig, annað kom hinsvegar á daginn og endaði liðið í 10. sæti deildarinnar og var hársbreidd frá því að komast í úrslitakeppnina.

Færsluna sem Carlos birti á Facebook síðu sinni má sjá hér að neðan:

„Eftir þrjú ár á Selfossi lýk ég í dag mjög sérstökum kafla í mínu lífi. Ég vil þakka leikmönnunum, vinum mínum í þjálfarateyminu; Atla, Gumma, Árna, Runari, Þóri, Jóa, Óskari Katli, fjölskyldunum og öllum sem komu að félaginu fyrir traustið, stuðninginn og allar stundirnar sem við áttum saman á þessum tíma. Þetta hafa verið ár mikils lærdóms, mikillar vinnu, vonbrigða, gleði og bæði faglegs og persónulegs þroska. Ég tek með mér dásamlegar minningar, vináttu og stoltið yfir því að hafa starfað með frábæru fólki innan sem utan vallarins. Ég er sannfærður um að félagið muni halda áfram að vaxa og ná frábærum árangri. Takk fyrir að láta mér líða eins og hluta af þessari fjölskyldu. Ég óska ykkur alls hins besta í framtíðinni. Takk fyrir mig! Stórt knús.“

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top