KÁ/AKÁ leggur skóna á hilluna
Egill Bjarni Friðjónsson

Halldór Kristinn Harðarson leikmaður Þórs hefur ákveðið að leggja handboltaskóna á hilluna. Þetta tilkynnir Þór á samfélagsmiðlum sínum í morgun.

Halldór Kristinn hefur allan sinn feril leikið með Þór og lék nú síðast með liðinu í Olís-deildinni sem nýliðar en liðið endaði í 9.sæti deildarinnar og var hársbreidd frá því að komast í úrslitakeppnina.

,,Dóri hefur ákveðið að láta staðar numið sem leikmaður í handbolta. Halldór spilaði þrjú ár með meistaraflokki Þórs eftir að hafa komið upp í gegnum yngri flokkana. Hann hefur unnið ótrúlega vinnu fyrir klúbbinn bæði innan og utan vallar," segir í tilkynningunni frá Þór.

Halldór fer nú í nýtt hlutverk og kemur inn í þjálfarateymi meistaraflokks karla hjá félaginu sem styrktarþjálfari þá er einnig tekið fram að hann mun sjá um styrktarþjálfun fyrir yngri flokka félagsins.

,,Það eru miklar gleðifréttir að við höldum Dóra áfram þrátt fyrir að hann sé hættur að spila."

Halldór Kristinn er einnig tónlistarmaður, undir listamannsnafninu KÁ/AKÁ - hann gaf meðal annars út Þórs lag fyrir sex árum síðan.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top