
Einar Örn Sindrason leikstjórnandi FH verður samningslaus á næstu dögum. Hann sagði í samtali við Handkastið á dögunum að hann væri í samningaviðræðum við FH og vonist til að framtíð sín liggi fyrir á næstunni. Einar Örn skoraði 52 mörk fyrir FH í Olís-deildinni og í úrslitakeppninni í vetur en FH fór alla leið í úrslitaeinvígið gegn Val en tapaði þar í oddaleik á Hlíðarenda. FH endaði einnig í 2.sæti Olís-deildarinnar og féll úr leik í undanúrslitum Powerade-bikarsins eftir tap gegn nágrönnum sínum í Haukum í undanúrslitum. Einar Örn hefur allan sinn feril leikið með FH þar sem hann er uppalinn. Yngri bróðir Einars, Garðar Ingi Sindrason yfirgefur FH í sumar og gengur í raðir Gummersbach í Þýskalandi.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.