Er Einar Rafn á leið í Krikann?
Egill Bjarni Friðjónsson

Samkvæmt heimildum Handkastsins er Einar Rafn Eiðsson í viðræðum við sitt fyrrum félag, FH um að ganga í raðir félagsins frá KA.

Handkastið greindi frá því fyrr á þessu ári að Einar Rafn og Unnur Ómarsdóttir væru að flytja í bæinn eftir veru sína á Akureyri undanfarin ár. Einar Rafn gaf það út að hann væri ekki hættur í handbolta og ætlaði að halda áfram á næsta tímabili.

Nú virðist vera komin lending í það mál og virðist Einar Rafn vera á leið í FH.

FH missti á dögunum hægri hornamanninn, Birgi Má Birgisson í atvinnumennsku og þá er samningur örvhentu skyttuna, Birkis Benediktssonar að renna út eftir eitt ár í Kaplakrikanum. Á dögunum gekk hægri skyttan, Ágúst Guðmundsson í raðir FH frá HK og því gæti FH verið búið að leysa málin með því að fá Einar Rafn til sín.

,,Staðan er bara þannig að við erum að vinna í öllum leikmannamálum hjá okkur og svosem litlu við það að bæta í dag," sagði Ágúst Bjarni Garðarsson formaður handknattleiksdeildar FH við Handkastið á dögunum þegar hann var spurður út í samningsstöðu Birkis Benediktssonar og hvort hann yrði áfram hjá félaginu.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top