Alfreð framlengir við þýska sambandið
Sina Schuldt / AFP

Alfreð Gíslason hefur framlengt samningi sínum við þýska handknattleikssambandið og verður þjálfari þýska karlaliðsins fram yfir Ólympíuleikana í Los Angeles sumarið 2028.

Þýska sambandið greindi frá þessu í fréttatilkynningu nú rétt í þessu.

Fyrri samningur Alfreðs átti að renna út eftir heimsmeistaramótið í Þýskalandi í janúar á næsta ári og hafði skapast mikil umræða um framtíð Alfreðs bæði eftir Evrópumótið og sérstlega fyrir Evrópumótið í janúar þar sem Þjóðverjar töpuðu í úrslitum gegn Danmörku.

Alfreð tók við karla landsliðið Þýskalands árið 2020 hefur unnið til tveggja silfurverðlauna, á Ólympíuleikunum í París 2024 og á EM núna í janúar.

Alfreð þjálfaði íslenska landsliðið á árunum 2006-2008 og þá þjálfaði hann Kiel frá árunum 2008-2019 við góðan orðstír.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top