

Halldór Kristinn Harðarson leikmaður Þórs ákvað á dögunum að segja skilið við það hlutverk að spila með Þór í Olís-deildinni og er kominn inn í þjálfarateymi liðsins ásamt öðrum verkefnum innan handknattleiksdeildar Þórs. Handkastið heyrði í Halldóri á dögunum og spurði hann aðeins út í ákvörðunina og hvað tæki við hjá sér hjá félaginu. ,,Mig langar alveg að spila handbolta áfram en þetta var þarft skref fyrir félagið. Við erum að reyna stækka og styrkja utanumhaldið bæði fyrir yngri flokka og meistaraflokkinn. Ég kem inn í þjálfarateymið hjá meistaraflokki þar sem ég sé um styrktarþjálfun og menninguna í félaginu og hvernig við viljum hafa þetta. Það dreifir sér alveg niður í yngri flokkana. Ég mun einnig sjá um styrktarþjálfun hjá 3. og 4.flokki," sagði Halldór kristinn sem segir að Þórsarar séu að reyna stækka heildarverkefnið. ,,Þannig við getum farið að koma upp með fleiri uppalda Þórsara í meistaraflokksliðið. Það hefur verið vöntun þar á og þetta er einn partur af því að reyna breyta því og bæta. Það var annað hvort að halda áfram að spila handbolta eða fara í þetta verkefni.” Halldór Kristinn hætti í handbolta árið 2014, rúmlega tvítugur að aldri. ,,Ég fór þá í fullt að keppa í kraftlyftingum, það fór ég svo í jiu-jitzu og þaðan í box. Ég kem svo aftur ekki fyrr en árið 2022 þegar Geir Kristinn tekur við liðinu og það átti bara að vera stutt stop. Ég átti bara að koma inn og hjálpa til á æfingum og rífa kjaft, sem mér tókst alveg að gera en á þeim tíma fannst mér ég var svolítið einn á báti, þegar maður sá að það bjó eitthvað í mörgum leikmönnum sem voru yngri en þetta var allt eitthvað svo slitrótt, þrátt fyrir frábært starf. Þarna var að koma upp ný kynslóð og síðan held ég áfram og við förum í það verkefni að reyna koma liðinu upp í Olís-deildina. Það tekst á þriðja ári og ég ætlaði í rauninni aldrei að hætta fyrr en við kæmum liðinu upp í Olís-deildina.” Hann segir að það sé mikill metnaður hjá Þór fyrir komandi tímum. Hann vonast til að félagið geti skilað af sér fleiri uppöldum leikmönnum inn í meistaraflokksliðið á komandi árum. ,,Það sem er erfitt við það að halda úti liði í Þorpinu er að yngri leikmenn hafa ekki verið að koma nýlega upp í meistaraflokkinn en það er góð þróun í því akkúrat núna. Það er mikið og gott starf unnið í Þorpinu og ég er stoltur að skilja við liðið sem leikmaður í efstu deild og það kom í rauninni ekkert annað til greina. Í rauninni langar mig ekkert að hætta spila handbolta, það er ógeðslega gaman að vera með klístur á puttunum en ég held að þetta hafi verið þarft skref við við ætlum að reyna halda þessu áfram. Ekki það að ég sé svona mikilvægur, heldur þarf fólk í kringum félagið og það þarf að gera þetta rétt.” ,,Við þurfum líka að læra af síðustu árum og þeim árum þar sem við höfum verið upp í efstu deild. Ég held að þetta sé einn partur af því, að mynda teymi á milli 4., 3. og meistaraflokkinn. Þar sem Daniel Birkelund meistaraflokksþjálfari er aðal maðurinn þar ásamt öllum hinum þjálfurunum.” ,,Ég held að kröftum mínum fyrir félagið sé betur varið í því hlutverki sem ég er kominn í núna. Ég mun ekkert hika við það í rauninni að ef ég þyrfti að spila aftur, þá myndi ég ekkert segja nei við því. En ég ætla ekki að spila og æfa handbolta eins og staðan er núna.” Halldór segist hafa mikla trú á liðinu og Þórsarar séu bjartsýnir fyrir næsta tímabili. ,,Við þurfum að bæta okkur og bæta við og ég vona innilega að yngri leikmenn félagsins verði samkeppnishæfir í vetur en menn þurfa að leggja hart að sér og æfa vel," sagði Halldór og hélt áfram: ,,Það er mikil vinna framundan og það þarf margt fólk til að halda úti öflugri handknattleiksdeild. Ég mun ekki hætta að rífa kjaft og verð áfram óþolandi við stjórnina og leikmennina því það þarf að gera þetta almennilega svo þetta eigi að ganga upp.” Hann segir að innkoma Kára Kristjáns Kristjánssonar hafi verið jákvæð fyrir félagið en Kári Kristján lék með liðinu óvænt á síðustu leiktíð eftir að hafa runnið út af samningi við uppeldisfélag sitt ÍBV. ,,Mér fannst gott að fá Kára Kristján á síðasta tímabili, hann kenndi okkur margt og kenndi mér margt. Hann vakti mig töluvert og fleiri. Þetta voru allt hlutir sem maður vissi en það var gott að fá Eyjamann til að þvo okkur hausinn," sagði Halldór Kristinn að lokum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.