
HSG Blomberg-Lippe tryggði sér sigur í öðrum úrslitaleiknum um þýska meistaratitilinn í handbolta kvenna með dramatískum 28:27 sigri á Borussia Dortmund á heimavelli í dag. Borussia Dortmund hafði möguleika á að tryggja sér titilinn með sigri í leiknum, en heimakonur í Blomberg-Lippe náðu að snúa leiknum sér í vil á lokakaflanum vel studdar af sínum stuðningsmönnum. Dortmund hafði undirtökin megnið af leiknum en sigurmarkið kom á lokasekúndunni þegar Alexia Hauf skoraði um leið og leiktíminn rann út og tryggði Blomberg-Lippe 28:27 sigur. Andrea Jacobsen og Díana Dögg Magnúsdóttir skoruðu báðar þrjú mörk fyrir Blomberg-Lippe í dag en Elín Rósa Magnúsdóttir skoraði 2 mörk. Þar með er staðan í úrslitaeinvíginu jöfn og þarf oddaleik til að skera úr um hvor liðið verður þýskur meistari. Þriðji leikurinn fer fram 31. maí á heimavelli Blomberg-Lippe og þar geta íslensku landsliðskonurnar tryggt sér þýska meistaratitilinn.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.