Handkastið hefur greint frá því að liðsfélagarnir í Kolstad, Benedikt Gunnar Óskarsson og Sigurjón Guðmundsson gætu gengið í raðir Vals fyrir næsta tímabil. Rætt var um málið í nýjasta þætti Handkastsins. ,,Strákarnir á ICE vildu ræða mögulegar heimkomur leikmanna Kolstad í Val, Sigurjóns Guðmundssonar markvarðar og Benedikts Gunnars Óskarssonar. Benni er samkvæmt heimildum Handkastsins byrjaður í smá viðræðum við Val og þetta er orðið meira og alvarlegra en áður. Valur er á leið í Evrópudeildina á næsta tímabili og mér skilst að FH sé líka búið að skrá sig og það er engin forkeppni, Ísland á tvo sæti í riðlakeppni Evrópudeildarinnar. Þetta væri Ice, Ice Cold ef bæði Benni og Sigurjón myndu ganga í raðir Vals," opnaði Arnar Daði umræðuna í þættinum áður en Klipparinn tók við. ,,Byrjum á Benna, það væri frábært fyrir Val ef það verður af þessu. Fyrir deildina væri ég alveg til í að hafa Benna bara úti. Ef Benni kemur í Val þá held ég að þetta sé orðið alltof sterkt lið fyrir önnur lið að eiga séns í. Jújú, Valur gæti tapað einhverjum leikjum fyrir áramót meðan þeir eru í Evrópudeildinni en þegar það er búið og þetta fer að skipta máli þá verður þetta helvíti gott lið og ég þarf að fara breyta ótímabæru spánni minni.” ,,Það verður áhugavert ef Benni kemur heim. Maður skilur það vel að Valur vilji fara í Evrópudeildina með alvöru lið, svo þeir lendi ekki í því sama og Framarnir lentu í," bætti Kristinn Björgúlfsson við í umræðuna áður en Klipparinn greip inní:

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.