
Í nýjasta þætti Handkastsins voru Stymmi klippari og Kristinn Björgúlfsson beðnir um að koma með sín "Hot take" eða umdeilda skoðun fyrir næstu leiktíð í Olís-deild karla og kvenna. Ein af umdeildum skoðunum Kristins Björgólfssonar var sú að silfurlið FH úr bæði Olís-deild karla og í úrslitakeppninni myndu ekki ná topp fjórum í Olís-deildinni á næstu leiktíð. FH myndi því byrja án stiga þegar úrslitakeppnin hefst en ný fyrirkomulag í úrslitakeppninni verður á næsta ári þegar efstu átta liðunum verður skipt upp í tvo fjögurra liða riðla. ,,Ég ætla að segja að FH nær ekki að vera í topp fjórum. Það hefur ekkert með það að gera hvort Aron Pálmarsson eða Sigursteinn Arndal stýra liðinu. FH verður ekki í topp fjórum.” ,,Ertu þá að ímynda þér að Valur, Haukar, ÍBV og Fram verða fyrir ofan FH?” spurði Arnar Daði Arnarsson þáttastjórnandi Handkastsins og Kristinn staðfesti að það væri pælingin. Stymmi klippari velti fyrir sér hvort KA ætti ekki heima á þeim lista en fékk ekki undirtektir Kristins.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.