Spáir því að Stjarnan falli úr Olís-deild karla
Sævar Jónasson

Í nýjasta þætti Handkastsins voru Stymmi klippari og Kristinn Björgúlfsson beðnir um að koma með sín "Hot take" eða umdeilda skoðun fyrir næstu leiktíð í Olís-deild karla og kvenna.

Ein af umdeildum skoðunum Kristins Björgólfssonar var sú að karlalið Stjörnunnar undir stjórn Sverris Eyjólfssonar myndi falla úr Olís-deildinni á næstu leiktíð. Hann var ekki alveg viss reyndar hvort það yrði beint fall úr deildinni eða eftir umspil.

,,Ég held að Stjarnan falli úr Olís-deild karla,” sagði Kristinn sem var þá spurður að því hvort það væri beint fall eða eftir umspil.

,,Bæði betra.”

Stjarnan hélt sæti sínu í Olís-deildinni með því að sigra umspilið en liðið endaði í 11.sæti Olís-deildarinnar á leiktíðinni en hafði betur gegn Fjölni og Herði í umspilinu. Þjálfarabreytingar voru gerðar á liðinu fyrir umspilið þegar Sverrir Eyjólfsson og Tandri Már Konráðsson tóku við liðinu af Hrannari Guðmundssyni.

Sverrir og Tandri munu stýra liði Stjörnunnar í Olís-deildinni í vetur.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top