Fjölhæfur sóknarmaður og sterkur varnarmaður semur í Garðabænum
Stjarnan

Stjarnan tilkynnti í hádeginu að Gunnar Dagur Bjarnason hafi skrifað undir sinn fyrsta samning við félagið.

Gunnar Dagur sem er fæddur árið 2008 gerir tveggja ára samning við félagið.

,,Hann er alinn upp í Stjörnunni og því er það okkur sérleg ánægja að sjá einn af okkar eigin skrifa undir sinn fyrsta samning. Gunnar er fjölhæfur sóknarmaður sem getur spilað bæði á miðju og í vinstri skyttu, einnig er hann sterkur varnarmaður," segir í tilkynningunni frá Stjörnunni.

,,Við höfum mikla trú á Gunnari og vonum að hann spili marga leiki í bláu treyjunni í framtíðinni."

Gunnar Dagur lék í vetur með 3.flokki félagsins og einnig með Stjörnunni 2 í 2.deildinni þar skoraði hann 39 mörk í 13 leikjum í vetur.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top