

Aron Pálmarsson var í dag kynntur sem nýr þjálfari karlaliðs FH í Olís-deild karla. Þetta var tilkynnt á blaðamannafundi sem FH hélt í veislusal sínum í Kaplakrika. Sigursteinn Arndal, sem tók við þjálfun FH árið 2019 og leiddi FH til Íslandsmeistaratitils árið 2024, verður aðstoðarþjálfari FH liðsins og skipta þeir því um hlutverk en Sigursteinn var aðalþjálfari FH-liðsins á nýafstöðnu tímabili og gerði í september í fyrra nýjan þriggja ára samning við FH. Hér að neðan má sjá viðtal við Aron Pálmarsson. Í viðtalinu segir Aron meðal annars að hann hafi fundið það fljótt eftir að hann kom inn í aðstoðarþjálfara starfið hjá FH að hann vildi vera aðalþjálfari.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.