Andrés Marel Sigurðsson leikur ekki með ÍBV í Olís-deild karla á næstu leiktíð. Þetta tilkynnti Eyjaliðið á samfélagsmiðlum sínum í vikunni. Andrés Marel hefur samkvæmt tilkynningunni frá ÍBV ákveðið að færa sig yfir á nýjan vettvang þar sem hann mun hefja nám í bænum eftir sumarið og verður því ekki með liðinu á komandi tímabili. ,,Andrés hefur verið dyggur félagsmaður í gegnum árin og lagt mikið af mörkum til liðsins bæði innan vallar sem utan. Þrátt fyrir meiðsli síðustu mánuði hefur hann sýnt mikinn karakter og verið liðinu og félaginu frábær fulltrúi allan sinn tíma í hvítu," segir í tilkynningunni frá ÍBV. Andrés lék aðeins fjóra leiki með ÍBV í vetur en í fyrra lék hann 14 leiki og skoraði rúmlega 10 mörk. ,,Við þökkum Andrési kærlega fyrir allt sem hann hefur gert fyrir félagið í gegnum árin og óskum honum alls hins besta í námi og þeim verkefnum sem fram undan eru."

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.