Landsliðsmaðurinn og leikmaður Magdeburg, Elvar Örn Jónsson hefur verið orðaður frá félaginu og hefur hann verið orðaður við þýska félagið Rhein Neckar Löwen. Þjálfari Magdeburg, Bennet Wiegert hefur tjáð sig um stöðu íslenska landsliðsmannsins sem er á sínu fyrsta ári hjá Magdeburg eftir að hafa gengið í raðir félagsins frá MT Melsungen fyrir tímabilið. Elvar Örn er samningsbundinn félaginu til ársins 2028. Þrátt fyrir það herma fregnir að hann gæti verið á leið til Rhein-Neckar Löwen en Frakkinn Thibaud Briet frá HBC Nantes er sagður líklegur arftaki hans hjá þýsku meisturunum. „Hann vill fá stærra hlutverk í sóknarleiknum. Við þurfum að skoða hvort við finnum lausn sem báðir aðilar eru sáttir við,“ sagði Wiegert í samtali við Sport Bild um stöðu Elvars og bætti við: „Í öllum samtölum sem ég hef átt við Elvar hefur umræðan ekki snúist um spilatíma.“ Vefsíðan Handball-world.news hefur tekið saman spilmínútur Elvars Arnar með Magdeburg í vetur. Þar kemur fram að þegar litið er til spilamínútna á tímabilinu hefur Elvar tekið þátt í 29 leikjum og verið inni á vellinum í rúmlega 16 klukkustundir alls, eða að meðaltali 33 mínútur og 23 sekúndur í leik. Af rétthentu skyttunum hefur aðeins Felix Claar spilað meira. Aðeins sex leikmenn Magdeburg hafa spilað meira en Elvar á tímabilinu. Sóknarframlag hans hefur hins vegar verið minna en áður. Elvar hefur aðeins skorað 50 mörk á tímabilinu en hann skoraði alltaf meira en 50 mörk með MT Melsungen. Á fjórum árum hjá MT Melsungen skoraði hinn 28 ára gamli Elvar Örn alls 372 mörk, þar af 129 mörk á tímabilinu 2023/24. Wiegert segir þó framlag Elvars mikilvægt: „Hann kom til okkar eftir tímabil þar sem hann glímdi mikið við meiðsli og er nú orðinn gríðarlega mikilvægur í varnarleiknum og hraðaupphlaupunum. Á sama tíma er ósk hans fullkomlega skiljanleg, því hann býr einnig yfir gríðarlega góðum sóknareiginleikum.“ Þjálfarinn undirstrikaði jafnframt að leikmenn hefðu stundum aðrar hugmyndir um framtíð sína: „Í afreksíþróttum verður maður að sætta sig við að leikmenn hafi stundum aðrar hugmyndir um framtíð sína.“ Frakkinn, Thibaud Briet er samningsbundinn Nantes til ársins 2028 og talið er ólíklegt að Elvar Örn fái að yfirgefa Magdeburg nema þýska félagið nái að kaupa Briet frá Nantes áður en samningur hans við Nantes rennur út.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.