Fyrrum leikmaður KA/Þórs semur á Spáni
Egill Bjarni Friðjónsson

Brasilíska handknattleikskonan Nathalia Soares Baliana sem lék með KA/Þór tvö tímabil frá árunum 2022/2024 hefur samið við félag á Spáni fyrir næstu leiktíð.

Hún yfirgaf KA/Þór eftir tímabilið 2023/2024 er liðið féll niður í Grill66-deildinni en hún er vinstri skytta sem kom til KA/Þórs frá Portúgal. Hún gengur nú í raðir spænska félagsins, San José Obrero sem féll niður í spænsku B-deildina eftir að hafa endað neðst í spænsku úrvalsdeildinni.

Baliana er fædd árið 2002 og hefur leikið í Portúgal frá veru sinni á Akureyri. Hún lék 40 leiki í Olís-deildinni með KA/Þór og skoraði 183 mörk.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top