
Samkvæmt heimildum Handkastsins gæti Gunnar Steinn Jónsson verið á heimleið eftir eitt ár í Svíþjóð og er hann í viðræðum við Aftureldingu um að koma inn í þjálfarateymi Aftureldingar. Samkvæmt heimildum Handkastsins verður Hrannar Guðmundsson nýr þjálfari Aftureldingar í Olís-deild karla en leit af aðstoðarmanni stendur yfir. Vonast Mosfellingar eftir því að geta ráðið Gunnar Stein með Hrannari. Hrannar tekur við Aftureldingu eftir að hafa stýrt karlaliði Stjörnunnar síðustu þrjú tímabil en honum var sagt upp störfum eftir deildarkeppnina í ár en þá var liðið á leið í umspil um laust sæti í Olís-deildinni. Sverrir Eyjólfsson og Tandri Már Konráðsson stýrðu liði Stjörnunnar í umspilinu. Afturelding hefur fengið til sín tvo leikmenn á dögunum þá Hans Jörgen Ólafsson og Hákon Daða Styrmisson. Aron Pálmarsson staðfesti í viðtali við Handkastið í gær að hann hafi farið í viðræður við Aftureldingu. Þá hefur Handkastið einnig greint frá því að félagið hafi reynt að fá Ásbjörn Friðriksson og Patrek Jóhannesson sem báðir sögðu nei. Gunnar Steinn var í þjálfarateymi sænska úrvalsdeildarliðsins, Hammarby í vetur og þá var hann einnig orðaður við Kristianstad. Gunnar Steinn stýrði Fjölni í Olís-deildinni tímabilið 2024/2025 er liðið lék í deildinni sem nýliðar en liðið féll niður í Grill66-deildina undir stjórn Gunnars Steins.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.