Íslenski handknattleiksmaðurinn Tryggvi Garðar Jónsson hefur gengið til liðs við norska félagið Viking Bergen fyrir komandi tímabil en Viking unnu sér sæti í úrvalsdeildinni fyrir næsta tíma.. Tryggvi er 23 ára gamall og kemur til Viking með reynslu úr efstu deild á Íslandi sem og í Austurríki þar sem hann lék með Alpla Hard í vetur. Samkvæmt tilkynningu félagsins er honum ætlað að styrkja liðið bæði í sókn og vörn á næstu leiktíð. Viking Bergen kynnti komu Íslendingsins á samfélagsmiðlum og bauð hann velkominn til félagsins og borgarinnar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.