Línumaðurinn Hannes Grimm hefur framlengt samningi sínu við Gróttu til ársins 2028. Þar með er ljóst að hann leikur áfram með liðinu í Grill66-deildinni á næstu leiktíð líkt og á síðustu leiktíð. ,,Það þarf vart að kynna Hannes Grimm fyrir Gróttufólki en hann er alinn upp á Nesinu og hefur verið fyrirliði Gróttuliðsins undanfarin ár," segir í tilkynningunni frá félaginu. Hannes á 216 leiki fyrir Gróttu og hefur skorað í þeim 319 mörk hann er lang leikjahæsti leikmaður Gróttu í dag. Þá segir í tilkynningunni að Hannes hafi undanfarin níu ár þjálfað yngri flokka félagsins við góðan orðstír. „Það eru frábær tíðindi að Hannes verði áfram í herbúðum félagsins enda lykilleikmaður liðsins bæði sóknarlega og varnarlega. Það er hugur í okkur Gróttumönnum og er Hannes mikilvægt púsl á þeirri leið," sagði Andri Sigfússon þjálfari Gróttuliðsins við undirritun samningsins en Andri tók við liðinu á dögunum af þeim Davíð Erni Hlöðverssyni og Lárusi Gunnarssyni.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.