Blomberg-Lippe og Dortmund áttust við í oddaleik liðanna um þýska meistaratitilinn í handbolta. Bæði lið höfðu fyrir leikinn í dag unnið heimaleikina sína og staðan í einvíginu var 1-1. Dortmund byrjaði leikinn betur og náðu forystu í fyrri hálfleik en Blomberg-Lippe unnu sig hægt og rólega inn í leikinn og leiddu með einu marki í hálfleik, 13-12. Í síðari hálfleik tóku þær öll völd á vellinum og byggðu upp forskotið hægt og rólega og voru mest komnar fimm mörkum yfir þegar um fjórar mínútur voru til leiksloka. Sigurinn var því aldrei í hættu og unnu Blomberg-Lippe því öruggan fjögurra marga sigur, 30-26. Díana Dögg Magnúsdóttir og Elín Rósa Magnúsdóttir skoruðu báðar 4 mörk fyrir Blomberg-Lippe en Andrea Jacobsen skoraði 3 mörk. Ona Pena var markahæst fyrir heimakonur með sjö mörk en hjá gestunum skoraði Deborah Lassource 8 mörk.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.