Lokahóf Íslandsmeistaraliða Vals fór fram um helgina en bæði karla og kvennalið félagsins urðu Íslandsmeistarar á tímabilinu. Þá urðu bæði lið deildarmeistarar og kvennaliðið varð einnig bikarmeistari. Mikið var um dýrðir og stemningin frábær er leikmenn, stjórn og sjálfboðaliðar fögnuðu frábæru keppnistímabili segir í færslu Vals á samfélagsmiðla síðu sinni. Andri Finnsson og Hafdís Renötudóttir voru valin bestu leikmenn tímabilsins. Hér að neðan má sjá þau verðlaun sem veitt voru á lokahófinu. Meistaraflokkur karla: Efnilegastur: Dagur Leó Fannarsson Bestur: Andri Finnsson Mikilvægastur: Arnór Snær Óskarsson Meistaraflokkur kvenna Efnilegust: Arna Karitas Eiríksdóttir Best: Hafdís Renötudóttir Mikilvægust: Lovísa Thompson

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.