Eitt félag sýnt Jóni Ómari áhuga
Sævar Jónasson

Í byrjun síðasta mánaðar komumst Haukar og línumaðurinn, Jón Ómar Gíslason að samkomulagi um að rifta samningi leikmannsins við félagið.

Jón Ómar gekk í raðir Hauka fyrir síðasta tímabil frá Gróttu en þar áður lék hann með Herði á Ísafirði. Jón Ómar var einn markahæsti leikmaður Olís-deildarinnar þegar hann lék með Gróttu en tækifæri hans með Haukum undir stjórn Gunnars Magnússonar var af skornum skammti.

Jón Ómar varð bikarmeistari með Haukum á tímabilinu en nú er óvíst hvað tekur við hjá línumanninum.

Í samtali við Handkastið sagði Jón Ómar að það væri lítið að frétta af hans málum og hann væri ekki í neinum samningaviðræðum við neitt félag.

Spurður að því hvort hann hafi átt í viðræðum við einhver félög sagði Jón Ómar að eitt félag hafi heyrt í honum eftir að hann hætti hjá Haukum.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top