Magnús Gunnar segir skilið við handboltann í bili
Egill Bjarni Friðjónsson

Það vakti athygli margra að Magnús Gunnar Karlsson einn af markvörðum bikarmeistara Hauka var hvergi sjáanlegur í leikmannahópi Hauka undir lok leiktímabilsins.

Magnús Gunnar lék með Gróttu á láni frá Haukum á þar síðustu leiktíð og var síðan einn af tveimur markvörðum Hauka fyrir áramót ásamt áður en Grétar Ari Guðjónsson gekk í raðir Hauka eftir dvöl sína erlendis.

Í kjölfarið urðu tækifæri Magnúsar enn minni en áður en fyrir áramót hafði Aron Rafn Eðvarðsson spilaði vel í marki Hauka og staðið í markinu meira og minna allan tímann.

Magnús Gunnar staðfesti í samtali við Handkastið á dögunum að hann væri búinn að taka sér pásu frá handknattleiksiðkun.

,,Eins og staðan er núna þá er ég hættur, eða allavegana kominn í pásu í bili. Mér fannst þetta bara komið gott í bili. Ég er þar að auki að fara í nám næsta vetur samhliða vinnu og því hef ég ekki jafn mikinn tíma í þetta og áður," sagði Magnús Gunnar í samtali við Handkastið.

Þessi tíðindi ýta enn meira undir það að Aron Rafn Eðvarðsson taki eitt ár í viðbót í það minnsta með Haukum og myndi þar markvarðarpar með Grétari Ara Guðjónssyni.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top