Final4 í Meistaradeild kvenna framundan – Györ líklegastar til sigurs

Aðeins fjögur lið standa eftir í baráttunni um Evrópumeistaratitilinn þegar úrslitahelgi Meistaradeildar kvenna fer fram í Búdapest 6. og 7. júní. Samkvæmt ítarlegri tölfræðigreiningu EHF er ríkjandi meistari Györ langlíklegastar til að lyfta bikarnum á meðan Brest er talið eiga erfiðasta verkefnið fram undan.

Gagnasérfræðingurinn Julian Rux hefur rýnt í tölfræðina fyrir úrslitahelgina og samkvæmt líkani hans eru sigurlíkur liðanna eftirfarandi:

  • Györ – 49,0%
  • Metz – 28,6%
  • CSM Búkaresti – 15,1%
  • Brest – 7,3%

Györ er talið sterkasta lið keppninnar þegar bæði sókn og vörn eru skoðuð. Ungverska stórliðið er í öðru sæti bæði í sóknar- og varnartölfræði, tapar fæstum boltum allra liða og neyðir andstæðinga sína oftar en nokkurt annað lið til mistaka. Þá hafa markverðirnir Zsófi Szemerey og Hatadou Sako verið meðal bestu markvarðapara Evrópu á tímabilinu.

Metz fer inn í úrslitahelgina með sterkustu vörn keppninnar samkvæmt tölfræðinni. Markvarðaparið Johanna Bundsen og Sabrina Novotná hefur átt frábært tímabil og líkanið telur Frakkana næstlíklegasta til titilsins.

CSM Búkaresti hefur byggt leik sinn að stórum hluta í kringum Elizabeth Omoregie, sem kemur að rúmlega fimmtungi allra sóknarlota liðsins. Rúmenska liðið er sterkt varnarlega en þarf að fá meira framlag frá fleiri leikmönnum ef það ætlar sér alla leið.

Þrátt fyrir að Brest sé með öflugustu sókn keppninnar og hæstu skotnýtinguna af öllum liðum eru þær frönsku ekki taldar líklegar til afreka. Ástæðan er fyrst og fremst varnarleikurinn, sem hefur verið veikasti hlekkurinn hjá liðinu á tímabilinu.

Undanúrslitin fara fram 6. júní þegar Brest mætir Györ og Metz leikur gegn CSM Búkaresti. Daginn eftir verður leikið um bronsið og Evrópumeistaratitilinn.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top