Stiven Tobar Valencia leikmaður íslenska landsliðsins og Benfica í Portúgal hefur ekkert leikið með félagsliði sínu síðustu vikur vegna meiðsla. Stiven Tobar varð fyrir því óláni að fara úr axlarlið á æfingu liðsins á dögunum og hefur nú staðfest í samtali við Handkastið að hann sé á leið í aðgerð vegna meiðslanna á föstudaginn. Stiven sem var að klára sitt þriðja tímabil með Benfica í Portúgal rennur út af samningi við félagið í sumar og viðurkennir að tímasetningin á meiðslunum sé ekki að hjálpa honum í leit af nýju félagi fyrir næstu leiktíð en fjallað hefur verið um það síðustu vikur og mánuði að Stiven gæti verið á förum frá félaginu. Hann hefur ekki enn fundið sér félag fyrir næstu leiktíð en ljóst er að hann missir af upphafi næsta tímabils vegna aðgerðarinnar. ,,Þetta gerðist á æfingu þar sem öxlin bara hreinlega gaf sig, ég fór úr og í lið og nú er ljóst að ég þarf að fara í aðgerð," sagði Stiven í samtali við Handkastið en hann fer í aðgerð á föstudaginn í Portúgal og verður í endurhæfingu eftir aðgerðina þar í sumar. Hann segist gera ráð fyrir því að vera frá keppni og æfingum í allt að fjóra mánuði eftir aðgerðina en um er að ræða hægri öxlina sem er jú einmitt skothöndin hjá Stiven.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.