Meistaradeild kvenna: Metz skrifar söguna – Györ slapp fyrir horn í dramatískum leik

Það verða Metz og Györ sem mætast í úrslitaleik Meistaradeildar kvenna á sunnudag eftir tvo gjörólíka undanúrslitaleiki í Búdapest í dag. Metz tryggði sér sinn fyrsta úrslitaleik í sögu félagsins með sannfærandi sigri á CSM Búkaresti, á meðan Györ þurfti að grafa djúpt í reynslubankann til að snúa við blaðinu gegn baráttuglöðu liði Brest á lokamínútunum.

Metz braut loksins múrinn

Metz hafði fjórum sinnum áður komist í úrslitahelgina án þess að komast í sjálfan úrslitaleikinn. Það breyttist loksins í dag þegar franska liðið sýndi mikinn þroska og yfirvegun gegn CSM Búkaresti.

Leikurinn var jafn framan af en Metz náði smám saman tökum á honum með öflugum varnarleik og góðri markvörslu. Rúmenska liðið átti erfitt með að finna lausnir gegn skipulögðum varnarleik Frakkanna og þegar leið á síðari hálfleikinn fór forskot Metz að aukast.

CSM reyndi hvað það gat að halda sér inni í leiknum en komst aldrei nægilega nálægt til að setja raunverulega pressu á Metz. Frakkarnir héldu haus allan tímann og sigldu að lokum öruggum sigri, 32:27, sem tryggði þeim fyrsta úrslitaleik félagsins í Meistaradeildinni.

Tyra Axnér fór fyrir sóknarleik Metz með átta mörk, en Saah Bouktit bætti við sex mörkum. Hjá CSM var Elizabeth Omoregie markahæst með sex mörk.

Fyrir CSM er tapið sérstaklega sárt, enda hafði félagið snúið aftur á úrslitahelgina í fyrsta sinn í átta ár og vonaðist til að endurtaka afrekið frá 2016 þegar liðið varð Evrópumeistari.

Györ slapp með skrekkinn gegn Brest

Ef fyrri undanúrslitaleikurinn einkenndist af yfirvegun var sá síðari hreint spennutrylli.

Brest byrjaði af miklum krafti og setti tóninn strax í upphafi. Franska liðið sýndi enga lotningu fyrir tvöföldum Evrópumeisturum Györ og skapaði sér ítrekað góð færi. Leikurinn var gríðarlega harður og líkamlegur og ekki leið á löngu þar til rauð spjöld fóru á loft hjá báðum liðum. Fyrst fékk fyrirliði Brest, Onacia Ondono, beint rautt spjald og skömmu síðar var Bruna de Paula hjá Györ einnig rekin af velli.

Györ hafði naumt forskot í hálfleik, 17:16, en Brest gaf ekkert eftir. Um miðjan síðari hálfleik náðu Frakkarnir tveggja marka forystu, 28:26, og þá fór að bera á taugaveiklun hjá ungverska stórliðinu. Brest virtist vera á leið í sinn annan úrslitaleik í sögu félagsins og hafði leikinn í sínum höndum þegar innan við stundarfjórðungur var eftir.

Reynsla ungverska liðsins reyndist hins vegar dýrmæt á lokakaflanum. . Györ jafnaði metin og skoraði síðan sigurmarkið á lokamínútunni áður en Brest mistókst að nýta síðustu sókn sína með sjö gegn sex leikmönnum. Lokatölur urðu 31:30 fyrir Györ í einum dramatískasta leik úrslitahelgarinnar um árabil. Dione Housheer átti stórleik fyrir Györ og skoraði níu mörk, meðan Anna Vyakhireva var markahæst hjá Brest með átta mörk

Úrslitadagurinn fram undan

Úrslitaleikurinn á sunnudag verður því viðureign tveggja liða sem hafa farið ólíkar leiðir til Búdapest. Györ er komið í úrslitaleikinn þriðja árið í röð og stefnir á þriðja Evrópumeistaratitilinn í röð, en Metz hefur aldrei áður komist svona langt og fær nú tækifæri til að vinna stærsta titil félagsins í fyrsta sinn.

Leikur um 3. sætið hefst klukkan 13:00 að íslenskum tíma, þegar Brest og CSM Bucuresti mætast.

Úrslitaleikurinn milli Györ og Metz hefst síðan klukkan 16:00 að íslenskum tíma, þar sem Evrópumeistaratitillinn verður í húfi og saga verður skrifuð hvort sem er – annað hvort vinnur Metz sinn fyrsta titil eða Györ lyftir bikarnum þriðja árið í röð.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top