Norðurlandamót lögreglumanna í handbolta fór fram í Stavanger í Noregi dagana 1-4 júní. Ísland, Noregur, Svíþjóð og Danmörk sendu lið í karlaflokki og í kvennaflokki voru það Ísland, Noregur og Danmörk sem sendu lið. Þjálfarar íslensku liðanna var heldur betur frábært teymi. Það voru lögreglumennirnir Heimir Ríkarðsson og Árni Friðleifsson. Íslensku liðin samanstóðu af fyrrum leikmönnum sem hafa lagt skóna á hilluna og örfáum núverandi leikmönnum sem hafa verið að vinna hjá Lögreglunni. Að sögn Þórhildar Völu Kjartansdóttir, fyrrum leikmanns Fjölnis, Fylkis og Aftureldingar voru mótherjar íslensku liðanna gríðarlega sterk og áttu íslensku liðin ekki mikinn möguleika á móti liðunum. Fór það svo að bæði íslensku liðin enduðu í neðsta sæti en allir áttu góða daga í Noregi og gleðin var við völd. Þetta mót er haldið á 4 ára fresti og samkvæmt Þórhildi Völu þá hafði hún heimildir fyrir því að líkur væri á því að mótið yrði haldið á Íslandi eftir 4 ár.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.