Danska landsliðskonan Helena Elver varð að sætta sig við tap í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu annað árið í röð þegar Györ beið lægri hlut gegn Metz 31-29, í úrslitaleiknum í Búdapest um helgina. Metz tryggði sér þar með sinn fyrsta Meistaradeildartitil í sögu félagsins, en Györ hafði farið inn í úrslitahelgina sem ríkjandi meistari síðustu tvö tímabil. Vonbrigðin leyndu sér ekki hjá Elver eftir leikinn. „Við vorum bara ekki nógu hugrakkar í því sem við vildum gera. Þetta er drullulélegt, finnst mér í rauninni. Ég á ekki mörg orð núna,“ sagði Elver í samtali við DR Sporten eftir leikinn. Franska liðið hafði undirtökin stærstan hluta leiksins og náði á tímabili sex marka forskoti. Györ tókst að minnka muninn undir lokin og hleypa spennu í leikinn á ný, en það dugði ekki til og Metz hélt út til sigurs. Elver sem gekk í raðir Györ síðasta sumar frá Odense hefur nú upplifað tvö töp í röð í úrslitaleik Meistaradeildarinnar. Á síðasta tímabili lék hún með Odense Håndbold sem beið einnig ósigur í úrslitaleiknum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.