Segir áhrif Gumma Gumm hafa verið gríðarleg
Bjorn LARSSON ROSVALL / TT NEWS AGENCY / AFP

Línumaður íslenska landsliðsins, Arnar Freyr Arnarsson lék um síðustu helgi sinn síðasta leik fyrir MT Melsungen en hann gengur í raðir Flensburg í sumar.

Arnar Freyr gekk í raðir MT Melsungen frá GOG sumarið 2020 og var því að ljúka sínu sjötta tímabili hjá félaginu. Guðmundur Þórður Guðmundsson stýrði MT Melsungen fyrsta tímabilið sem Arnar Freyr var hjá félaginu og hann segir að áhrif Guðmundar á félagið hafi verið gríðarleg þegar hann tók við sem þjálfari árið 2020.

Melsungen fagnaði nýverið fyrsta stóra titli sínum frá stofnun félagsins þegar liðið stóð uppi sem sigurvegari í Evrópudeildinni eftir sigur á THW Kiel í úrslitaleiknum. Að sögn Arnars markaði koma Guðmundar þáttaskil í starfsemi félagsins.

„Klúbburinn var í uppbyggingarfasa og hann breytti kúlturnum. Við byrjuðum að hlaupa meira og lyfta meira, æfingar urðu harðari og öll umgjörðin í kringum klúbbinn breyttist líka. Hann fær til okkar góða leikmenn sem voru hérna í smá tíma, svo tekur Roberto [Garcia] við og byggði á því," sagði Arnar Freyr en það var Vísir sem greindi fyrst frá ummælum Arnars Freys hér á landi.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top