Dana Björg í liði ársins í Noregi
THOMAS KIENZLE / AFP

Landsliðskonan, Dana Björg Guðmundsdóttir sem yfirgefur norska 1.deildarliðið Volda í sumar og gengur í raðir Larvik í norsku úrvalsdeildinni var á dögunum valin í lið ársins í norsku 1.deildinni.

Dana Björg fór á kostum með liði Volda á tímabilinu en hún varð fyrir áfalli undir lok tímabils og meiddist og gat ekki leikið með liðinu í síðustu leikjum tímabilsins og þá missti hún einnig af mikilvægum leikjum íslenska landsliðsins í undankeppni Evrópumótsins.

Dana Björg var markahæsti leikmaður Volda á tímabilinu með 121 mark í 25 leikjum en liðið endaði í 5.sæti norsku 1.deildarinnar.

Lið 1.deildar í Noregi má sjá hér að neðan.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top