Sverrir Páls hefur lagt skóna á hilluna
Egill Bjarni Friðjónsson

Handknattleiksmaðurinn Sverrir Pálsson hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna og mun því ekki leika með Selfossi á komandi tímabili í Olís-deild karla.

Þetta staðfesti Örn Þrastarson, nýráðinn þjálfari Selfoss, í samtali við Handkastið þegar hann fór yfir stöðu leikmannahópsins fyrir næsta tímabil.

„Það verða litlar breytingar á liðinu. Sverrir Pálsson hefur lagt skóna á hilluna. Flestir aðrir halda áfram eins og staðan er núna,“ sagði Örn.

Sverrir var leikreyndasti leikmaður Selfoss á síðasta tímabili en hann sneri til baka á miðju tímabili eftir að hafa farið í aðgerð síðasta sumar.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top