Benedikt hættur í handbolta
Sævar Jónasson

Benedikt Marinó Herdísarson hægri skytta Stjörnunnar í Olís-deild karla undanfarin ár er hættur í handbolta. Þetta staðfesti hann í samtali við Handkastið á dögunum.

Samningur Benedikts við Stjörnuna rennur út í sumar og hefur hann ákveðið að framlengja ekki samningi sínum við uppeldisfélagið heldur hætta handknattleiksiðkun.

Benedikt Marinó sem verður 23 ára síðar á árinu hefur leikið með Stjörnunni undanfarin ár að undanskildu einu tímabili er hann lék á láni hjá Fjölni í Grill66-deildinni. Benedikt skoraði 88 mörk fyrir Stjörnuna á tímabilinu og var næst markahæsti leikmaður liðsins.

Nú er ljóst að Stjarnan hefur misst tvo markahæstu leikmenn liðsins frá síðustu leiktíð en Hans Jörgen Ólafsson markahæsti leikmaður liðsins á tímabilinu gekk í raðir Aftureldingar eftir tímabilið.

Stjarnan endaði í 11.sæti Olís-deildarinnar á síðustu leiktíð en vann Hörð í úrslitum umspilsins um laust sæti í Olís-deildinni. Hægri skyttan, Dagur Sverrir Kristjánsson gekk í raðir félagsins eftir tímabilið eftir dvöl í Svíþjóð undanfarin ár og þá fékk liðið línumanninn, Tóka Friðriksson frá Færeyjum sem á að fylla skarð Jóns Ásgeirs Eyjólfssonar sem gekk í raðir Vals.

Adam Thorstensen hefur einnig yfirgefið Stjörnuna en hann leikur í þýsku B-deildinni á næstu leiktíð.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top