Úrslitahelgi Meistaradeildar Evrópu kvenna í Búdapest vakti gríðarlega athygli um allan heim og jafnaði áhorfendamet keppninnar. Alls mættu 20.022 áhorfendur í MVM Dome á úrslitaleikinn þar sem Metz varð fyrsta franska félagið í sögunni til að vinna Meistaradeildina með sigri á Györ. Þessi tala jafnar heimsmetið fyrir áhorf á félagsliðaleik í kvennahandbolta sem áður var sett á FINAL4 árið 2023. Uppselt var á úrslitaleikinn og stemningin í höllinni var mögnuð frá fyrstu mínútu til þeirrar síðustu. Áhugi á úrslitahelginni var ekki aðeins mikill í Búdapest. Alls sýndu 32 sjónvarpsstöðvar frá leikjunum í um 60 löndum, auk þess sem EHFTV streymdi leikjunum um allan heim. Í Frakklandi, Ungverjalandi og Rúmeníu, löndum liðanna fjögurra sem tóku þátt í FINAL4, fylgdust meira en 1,2 milljónir sjónvarpsáhorfenda með leikjunum í beinni útsendingu. Á samfélagsmiðlum náði FINAL4 einnig nýjum hæðum. Efni frá úrslitahelginni á Instagram skilaði yfir 16,3 milljónum birtinga, sem er meira en tvöföldun frá fyrra ári. Þá voru skráðar tæplega 400 þúsund gagnvirkar aðgerðir á Instagram og samanlagt yfir 7,3 milljón myndbandsáhorf á Instagram og Facebook á úrslitahelgarvikunni. Auk leikjanna sjálfra var mikil þátttaka í aðdáendasvæði mótsins og á kynningaviðburðum fyrir úrslitahelgina. Fjölmiðlafólki á staðnum fjölgaði einnig um 28% frá fyrra ári, sem undirstrikar sívaxandi vinsældir kvennahandboltans á stærsta sviði Evrópu. Úrslitahelgin markaði einnig ákveðin tímamót fyrir yngri kynslóðina, en samhliða FINAL4 fór fram fyrsta úrslitakeppni EHF Youth Club Trophy Women þar sem framtíðarstjörnur Evrópu fengu að láta ljós sitt skína. Unglingalið DVSC frá Ungverjalandi stóð þar uppi sem sigurvegari eftir úrslitaleik gegn unglingaliði CSM Búkaresti. Með sögulegum sigri Metz, jöfnuðu áhorfendameti og metaðsókn á öllum miðlum staðfesti FINAL4 2026 enn á ný að kvennahandboltinn heldur áfram að vaxa og styrkja stöðu sína sem ein stærsta félagsliðakeppni Evrópu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.