Spennandi að spila undir stjórn Arnórs Atla
TTH Holstebro

Benedikt Óskarsson var í morgun kynntur sem nýr leikmaður danska úrvalsdeildarfélagsins TTH Holstebro og leikur með liðinu á næstu leiktíð.

Benedikt gerir eins árs samning við félagið en hann gengur í raðir félagsins eftir tveggja ára dvöl hjá Kolstad í Noregi.

Benedikt segir á heimasíðu danska félagsins skiptin til TTH Holstebro vera spennandi næsta skref á ferlinum.

„TTH Holstebro er spennandi félag og ég hef lengi haft áhuga á að reyna fyrir mér í dönsku deildinni. Þegar þetta tækifæri kom upp fannst mér það vera nákvæmlega rétta næsta skrefið fyrir mig. Ég hlakka til að verða hluti af félaginu og upplifa danskan handbolta af eigin raun.“

Hann segist einnig hlakka til að leika undir stjórn Arnórs Atlasonar þjálfara liðsins og takast á við þær áskoranir sem bíða á komandi tímabili.

„Það verður líka spennandi að fá að spila undir stjórn Arnórs Atlasonar, sem ég tel vera afar hæfileikaríkan þjálfara. Ég hlakka til að þróast áfram sem leikmaður, sýna hvað í mér býr bæði í dönsku deildinni og Evrópudeildinni og vonandi leggja mitt af mörkum til að ná góðum árangri með félaginu.“

TTH Holstebro endaði í 4.sæti dönsku úrvalsdeildarinnar á leiktíðinni en komst ekki í undanúrslit úrslitakeppninnar eftir að hafa endaði í 3.sæti í sínum riðli í 8-liða úrslitunum.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top