Bjarki Már í liði tímabilsins í Ungverjalandi
Veszprem

Landsliðsmaðurinn Bjarki Már Elísson sem leikið hefur verið með Veszprém í Ungverjalandi undanfarin ár var valinn í lið tímabilsins í ungversku deildinni en hann varð ungverskur meistari með liðinu á dögunum. 

Bjarki Már Elísson hefur leikið sinn síðasta leik fyrir félagið en samningur hans rennur út í sumar og verður hann ekki áfram í herbúðum félagsins. Enn sem komið er ekki víst hvar Bjarki Már leikur á næstu leiktíð en Bjarki varð 36 ára í síðasta mánuði.

Bjarki var átti frábært tímabil í Ungverjalandi og er einn af fimm leikmönnum Veszprém í liði tímabilsins. 

Ásamt Bjarka eru Mikael Appelgren, Ivan Martinovic, Dragan Pechmalbec og Hugo Descat allir í liði ársins en Hugo Descat og Bjarki Már deildu vinstri hornastöðunni saman á tímabilinu.

Lið tímabilsins í Ungverjalandi er hægt að sjá hér að neðan.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top