HSÍ hefur gefið út leikjaniðurröðunina fyrir Grill66 - deild karla fyrir næstu leiktíð en tólf lið taka þátt í Grill66-deildinni. ÍR féll úr Olís-deild karla og þá vann Víðir og Víkingur 2 sér sæti í deildinni eftir góðan árangur í 2.deildinni á síðustu leiktíð. Það verður sannkallaður stórleikur í 1. umferðinni þegar Harðverjar taka á móti ÍR fyrir vestan. Hörður tapaði í úrslitaeinvíginu um laust sæti í Olís-deildinni gegn Stjörnunni á síðustu leiktíð. Grótta sem var hársbreidd frá því að vinna deildina á síðustu leiktíð fær nýliða Víðis í heimsókn í 1.umferðinni. Hér að neðan er hægt að sjá fyrstu tvær umferðirnar í Grill66-deildinni en leikjaniðurröðunina má sjá hér.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.