Christian O'Sullivan kvaddi SC Magdeburg með sigri þegar þýska liðið vann Álaborg 32-26 í leiknum um þriðja sætið í Meistaradeild Evrópu. Þar með lauk tíu ára samstarfi Norðmannsins við félagið á fallegan hátt, en hann hefur engin áform um að leggja skóna á hilluna. Þrátt fyrir að hafa ekki náð að enda dvöl sína hjá Magdeburg með öðrum Meistaradeildartitli gat O'Sullivan yfirgefið Köln með bros á vör eftir að liðið tryggði sér bronsverðlaunin. „Ég vil halda áfram að spila. Mér finnst þetta enn allt of skemmtilegt til að hætta,“ sagði hinn 34 ára gamli Norðmaður eftir leikinn. Bennet Wiegert, þjálfari Magdeburg, sendi O'Sullivan inn á völlinn á lokamínútunum og var honum fagnað innilega af áhorfendum í Lanxess Arena. Ekki voru það aðeins stuðningsmenn Magdeburg sem risu úr sætum heldur einnig hlutlausir áhorfendur sem vildu heiðra leikmann sem hefur verið einn af lykilmönnum félagsins undanfarinn áratug. O'Sullivan hefur átt stóran þátt í velgengni Magdeburg á síðustu árum og verið ein af mikilvægustu stoðum liðsins bæði innan vallar og utan. Hvert næsta skref Norðmannsins verður vill hann þó ekki gefa upp að svo stöddu. Hann staðfesti hins vegar að biðin verði ekki löng. Samkvæmt O'Sullivan verður nýtt félag hans kynnt einhvern tímann á næstu dögum og því ætti fljótlega að skýrast hvar einn reyndasti leikmaður Evrópu heldur ferlinum áfram.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.