Ásgeir Bragi á Nesið
Grótta

Línumaðurinn Ásgeir Bragi Bryde Þórðarson hefur samið við Gróttu og leikur því með liðinu í Grill66-deildinni á næstu leiktíð. Ásgeir Bragi sem gengur í raðir Gróttu frá uppeldisfélagi sínu Haukum, gerir tveggja ára samning við Gróttu.

Ásgeir er 21 árs en hann lék alla leiki Hauka 2 í Grill 66-deildinni síðastliðinn vetur og skoraði 28 mörk. Ásgeir hefur leikið 43 leiki fyrir Hauka í Olís-deildinni síðustu ár.

,,Það eru mikil gleðitíðindi að Ásgeir semji við okkur í Gróttu. Hann er öflugur línumaður, bæði sóknar- og varnarlega. Hann mun smellpassa í Gróttuliðið," sagði þjálfari Gróttu, Andri Sigfússon við undirritun samningsins en Andri tók við liðinu af Davíð Erni Hlöðverssyni eftir síðasta tímabil.

Töluverðar breytingar verða á liði Gróttu fyrir næsta tímabil en liðið var hársbreidd frá því að vinna Grill66-deildina en liðið endaði með jafnmörg stig og Víkingur sem vann deildina. Grótta tapaði síðan óvænt í undanúrslitum umspilsins gegn Herði 2-0.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top