Ágúst Ingi rifti samningi sínum við Aftureldingu
Egill Bjarni Friðjónsson

Ágúst Ingi Óskarsson hefur rift samningi sínum við Aftureldingu eftir eins árs dvöl í Mosfellsbænum. Þetta staðfesti hann í samtali við Handkastið.

Ágúst Ingi gekk í raðir Aftureldingar fyrir síðasta tímabil eftir að hafa leikið tvö tímabil með Gróttu en þar áður var hann að mála hjá Haukum.

Ágúst Ingi sem er uppalinn í HK lék tímabilið 2021/2022 með Neistanum í Færeyjum. Hann sagði í samtali við Handkastið að ástæðan fyrir því að hann hafi rift samningi sínum við Aftureldingu hafa verið sú að hann hafi verið að reyna við ævintýri erlendis.

Hann gerir hinsvegar ekki ráð fyrir að það gangi upp eins og staðan er núna og segir hann stöðuna vera óljósa með sig og framhaldið.

Hann segist vera í viðræðum við Aftureldingu um nýjan samning en tvö önnur lið í Olís-deildinni hafa einnig haft samband við sig. Hann segir að sín mál skýrist á næstunni en þessa stundina er hann erlendis í fríi.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top