Þorvaldur kynntur í Póllandi
Skjáskot

Íslands- og deildarmeistarinn, Þorvaldur Örn Þorvaldsson hefur samið við pólska félagið GE Wybrzeże Gdansk líkt og Handkastið greindi frá í síðasta mánuði. Hann var kynntur sem nýr leikmaður liðsins á samfélagsmiðla síðu félagsins um helgina.

Þorvaldur fór til Póllands í byrjun árs á reynslu hjá félaginu og fékk í kjölfarið samningstilboð frá pólska liðinu en liðið endaði í 4.sæti pólsku úrvalsdeildarinnar með 48 stig, stigi á eftir 3.sætinu.

Þorvaldur varð í Íslandsmeistari með Val eftir sigur gegn FH 27-26 í oddaleik úrslitaeinvígisins. Þorvaldur sem er fæddur árið 2004 er uppalinn hjá Val og hefur verið í stóru hlutverki hjá liðinu undanfarin tvö tímabil.

Hér að neðan má sjá kynningarmyndband af Þorvaldi í sólinni í Póllandi þar sem hann kynnir sig fyrir stuðningsmönnum liðsins.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top