Kom til greina að vera áfram í ÍBV
Afturelding

Vinstri hornamaðurinn, Hákon Daði Styrmisson gekk á dögunum í raðir Aftureldingar eftir hálfs árs dvöl hjá uppeldisfélagi sínu ÍBV en hann kom heim úr atvinnumennsku um áramótin og lék með ÍBV eftir áramót.

Samningur hans var hinsvegar aðeins út tímabilið og ljóst að Hákon Daði myndi geta leitað annað eftir tímabilið en hann eignaðist sitt fyrsta barn á þessu ári og var það ástæðan fyrir heimkomu hans úr atvinnumennskunni um áramótin.

Handkastið heyrði í vinstri hornamanninum og spurði hann út í vistaskipti hans til Aftureldingar en hann segist hafa heyrt fyrst frá Afturelding um miðjan maí mánuð.

,,Það kom sterklega til greina að vera áfram hjá ÍBV en það hentaði ekki að flytja til eyja að svo stöddu og þar að leiðandi var það erfitt að vera í ÍBV áfram," sagði Hákon Daði sem staðfesti að hann hafi einnig átt í viðræðum við nýliða Víkings.

,,Mér líst einkar vel á næst komandi tímabil með Aftureldingu og ég er spenntur fyrir þeim handbolta sem okkur langar að spila. Ég þekkti ekki mikið til hópsins og það er mikið af ungum peyjum í liðinu. En gömlu karlarnir þarna þekki ég aðeins og er spenntur fyrir komandi tímum með hópnum."

Eins og fyrr segir gekk Hákon Daði í raðir ÍBV um áramótin.

,,Mér fannst auðvitað erfitt að kveðja Þýskaland og lífið þar. En gott að koma heim til fjölskyldunnar og stofna sína eigin og hafa fólkið sitt nálægt í þessu nýja hlutverki."

Hákon segir að hann hafi alveg hugsað út í það að reyna að fara aftur út í atvinnumennsku í sumar en aðstæður hafi ekki leyft það.

,,Við hugsuðum alveg smá um það en það varð ekkert úr því svona nýkomin með litlu stelpuna okkar. Ég hef ekki ennþá útilokað neitt og ef gott tækifæri gefst þá veit maður aldrei en eins og er, er ég ánægður þar sem ég er."

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top