Hrannar Guðmundsson tók nýverið við Olís-deildarliði Aftureldingar eftir að hafa stýrt Stjörnunni úr Garðabæ síðustu þrjú tímabil í sömu deild. Hrannar tekur við Aftureldingu af Stefáni Árnasyni sem stýrði liðinu eitt tímabil en var látinn taka pokann sinn eftir tímabilið eftir að hafa endað í 6.sæti deildarinnar og tapað í oddaleik í 8-liða úrslitum úrslitakeppninnar gegn Haukum. ,,Það er nokkrar vikur síðan við hófum samtalið. Þetta tók allt sinn tíma en stjórnin gaf sér tíma í þetta og vildi gera þetta vel og finna út hvað þeir vildu gera," sagði Hrannar Guðmundsson í samtali við Handkastið. Hrannar segir að það hafi ekki verið nein spurning að hans hálfu þegar Afturelding hafði samband við hann og buðu honum að taka við liðinu. ,,Þetta er uppeldisfélagið mitt, ég bý í Mosó, stelpurnar mínar eru í félaginu svo að Varmá hefur alltaf verið mitt annað heimili. Ég hef alltaf stefnt að því að þjálfa Aftureldingu einn daginn og er mjög spenntur fyrir verkefninu." Ingimundur Ingimundarson verður aðstoðarmaður Hrannars í Mosfellsbænum en í tilkynningunni frá félaginu var það nokkuð óljóst hver skiptingin væri í þjálfarateyminu. ,,Ég er aðalþjálfari liðsins og Ingimundur er aðstoðarþjálfari. Hinsvegar eru þjálfarateymi í dag bara orðin mikil samvinna og erum við bara báðir í þessu af fullum hug." ,,Ingimundur er frábær þjálfari sem hefur sýnt það að hann er mjög góður að vinna með ungum leikmönnum. Einnig hefur hann mikla reynslu sem mun nýtast okkur mjög vel. Hann var efstur á blaði þegar ég nefndi menn með mér. Hann neitaði okkur fyrst en snerist svo hugur og er ég gríðarlega ánægður með að fá hann með mér og hefur sambandið byrjað mjög vel." ,,Mér líst mjög vel á tímabilið sem framundan er. Afturelding er með gríðarlega spennandi lið, margir ungir og efnilegir Mosfellingar í liðinu. Einnig er blandan af leikmönnum góð. Við erum með reynslu meiri leikmenn í bland við þá ungu. Afturelding er lið sem horfir alltaf upp og þurfum við bara allir að hjálpast að að taka næsta skref." Handkastið greindi frá því á dögunum að Árni Bragi Eyjólfsson væri samningslaus. Hrannar segir það enga spurningu að það sé eitt af verkefnum nýs þjálfarateymis að sannfæra Árna Braga að vera áfram. ,,Árni er frábær handboltamaður sem á nóg inni. Hann er einnig Mosfellingur með stórt Aftureldingarhjarta svo að það er eitt af okkar fyrstu verkefnum að semja við hann og er ég fullur bjartsýni á að það gerist." Eins og fyrr segir stýrði Hrannar liði Stjörnunnar síðustu þrjú tímabil. Hrannar segist vera mjög stoltur af tímanum í Stjörnunni. ,,Þetta er félagið sem gaf mér fyrst tækifæri sem aðalþjálfari bæði í karla og kvenna. Við gengum í gegnum miklar breytingar og var gengið upp og niður. Síðasta tímabil var mjög súrealískt. Mikil meiðsli sem ég treysti mér að segja að hafi verið á öðru leveli. Allir leikmenn liðsins duttu út í einhvern tíma og var þetta mikið púsluspil allan veturinn. Við byrjuðum tímabilið með að vinna meistara meistaranna og duttum út í vítakastkeppni í undankeppni Evrópudeildarinnar. Það má segja að meiðslin hafi byrjað þar. Þar misstum við Tandra út með slitna hásin og Adam með höfuðáverka og báðir urðu frá í einhvern tíma og svo héldu meiðslin bara áfram í kjölfarið." Það fór svo að Stjarnan endaði í 11.sæti deildarinnar og fór í umspil um laust sæti í Olís-deildinni. Hrannar var sagt upp störfum í Garðabænum áður en umspilið hófst. Hann segist hafa verið vonsvikinn með þá ákvörðun. ,,Ég vildi klára umspilið en svona er þetta bara. En þeir héldu sér uppi í Olís deildinni og er ég mjög ánægður með það og hefði það verið mjög súrt að sjá liðið falla niður í grillið," sagði Hrannar að lokum í samtali við Handkastið.Varmá mitt annað heimili
Bjartsýnn á að Árni Bragi framlengi
Vildi klára tímabilið með Stjörnuna

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.