Þrír íslenskir landsliðsmenn hafa verið tilnefndir í lið ársins. Um er að ræða þá Orra Frey Þorkelsson leikmann Sporting í Portúgal og liðsfélagana Ómar Inga Magnússon og Gísla Þorgeir Kristjánsson leikmenn Þýskalandsmeistara Magdeburg. Sporting komst í 8- liða úrslit keppninnar en tapaði þar fyrir Álaborg á meðan Magdeburg tapaði fyrir Füchse Berlín í undanúrslitum en vann bronsið með sigri á Álaborg um helgina í Lanxess Arena í Köln. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framúrskarandi frammistöðu leikmannanna á tímabilinu, bæði með félagsliðum sínum og íslenska landsliðinu. Allir þrír hafa skipað lykilhlutverk í velgengni sinna liða og eru meðal fremstu leikmanna Evrópu í sínum stöðum. Kosning fyrir EHF Excellence Awards 2026 hófst í dag í Home of Handball appi EHF og stendur til sunnudagsins 21. júní klukkan 23:59. ,,Tilnefningarnar marka mikilvægan áfanga fyrir íslenskan handbolta og eru enn ein staðfesting á þeirri sterku stöðu sem íslenskir leikmenn hafa skapað sér á meðal bestu handknattleiksmanna Evrópu," segir í tilkynningu frá HSÍ. Leikmennirnir sem koma til greina í lið tímabilsins eru eftirfarandi: Vinstra horn: Vinstri skytta Leikstjórnandi: Hægri skytta: Hægra horn: Línumaður: Markmaður: Varnarmaður:
August Pedersen (NOR, TSV Hannover-Burgdorf)
Hugo Descat (FRA, One Veszprém HC)
Orri Freyr Þorkelsson (ISL, Sporting Clube de Portugal)
David Mandić (CRO, MT Melsungen)
Ian Barrufet (ESP, Barça)
Tim Freihöfer (GER, Füchse Berlin)
Simon Pytlick (DEN, SG Flensburg-Handewitt)
Elohim Prandi (FRA, Paris Saint-Germain Handball)
Lasse Andersson (DEN, Füchse Berlin)
Thibaud Briet (FRA, HBC Nantes)
Martim Costa (POR, Sporting Clube de Portugal)
Timothey N'guessan (FRA, Barça)
Gísli Kristjánsson (ISL, SC Magdeburg)
Juri Knorr (GER, Aalborg Håndbold)
Thomas Arnoldsen (DEN, Aalborg Håndbold)
Felix Claar (SWE, SC Magdeburg)
Domen Makuc (SLO, Barça)
Aymeric Minne (FRA, HBC Nantes)
Mathias Gidsel (DEN, Füchse Berlin)
Francisco Costa (POR, Sporting Clube de Portugal)
Ómar Ingi Magnússon (ISL, SC Magdeburg)
Blaž Janc (SLO, Barça)
Melvyn Richardson (FRA, Orlen Wisla Plock)
Mads Hoxer (DEN, Aalborg Håndbold)
Aleix Gómez (ESP, Barça)
Lukas Zerbe (GER, THW Kiel)
Bence Imre (HUN, THW Kiel)
Mario Šoštarić (CRO, OTP Bank - PICK Szeged)
Kristian Bjørnsen (NOR, Aalborg Håndbold)
Hákun av Teigum (FAR, Füchse Berlin)
Johannes Golla (GER, SG Flensburg-Handewitt)
Luís Frade (POR, Barça)
Magnus Saugstrup (DEN, SC Magdeburg)
Bence Bánhidi (HUN, OTP Bank - PICK Szeged)
Felix Möller (SWE, Aalborg Håndbold)
Kamil Syprzak (POL, Paris Saint-Germain Handball)
Emil Nielsen (DEN, Barça)
Andreas Wolff (GER, THW Kiel)
Niklas Landin (DEN, Aalborg Håndbold)
Nebojsa Simić (MNE, MT Melsungen)
Dejan Milosavljev (SRB, Füchse Berlin)
Kevin Møller (DEN, SG Flensburg-Handewitt)
Karl Konan (FRA, Paris Saint-Germain Handball)
Adrián Sipos (HUN, MT Melsungen)
Borut Mačkovšek (SLO, OTP Bank - PICK Szeged)
Ludovic Fabregas (FRA, Barça)
Salvador Salvador (POR, Sporting Clube de Portugal)
Mijajlo Marsenić (SRB, Füchse Berlin)

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.