Bjarki Már enn samningslaus – Neitaði stórliði
Veszprem

Vinstri hornamaður íslenska landsliðsins, Bjarki Már Elísson verður samningslaus í sumar þegar samningur hans við stórlið ONE Veszprém rennur út.

Bjarki Már hefur leikið með Veszprem frá árinu 2022 en þar áður lék hann með Eisenach, Füchse Berlin og síðast með Lemgo áður en hann fór til Veszprém.

Bjarki Már var meðal annars í liði tímabilsins í Ungverjalandi sem var gefið út á dögunum.

Samkvæmt heimildum Handkastsins neitaði Bjarki Már samningi frá rúmenska stórliðinu Dinamo Bucuresti en félagið hefur unnið rúmensku deildina níu tímabil í röð og hefur leikið í Meistaradeild Evrópu síðustu tímabil.

Bjarki Már sem varð 36 ára í síðasta mánuði er samkvæmt heimildum Handkastsins enn í leit að nýjum áfangastað á sínum ferli en hann er staddur í fríi með fjölskyldu sinni við Lake Garda á Ítalíu ásamt Janusi Daða Smárasyni landsliðsmanni og hans fjölskyldu.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top