Einn af dáðustu sonum Fram framlengir við félagið
Egill Bjarni Friðjónsson

Einar Jónsson þjálfari karlaliðs Fram í Olís-deildinni hefur framlengt samningi sínum við Fram til þriggja ára.

Einar er þar með samniningsbundinn Fram til ársins 2029. Þetta tilkynnti félagið á samfélagsmiðlum sínum nú rétt í þessu.

,,Einar þarf vart að kynna en hann er einn af dáðustu sonum félagssins og hefur verið lykilmaður í uppbyggingu okkar starfs í þrjá áratugi, með stuttum hléum," segir í tilkynningunni frá Fram.

Einar Jónsson hefur stýrt karlaliði Fram til tveggja síðustu Íslandsmeistaratitla félagsins, þann síðari tímabilið 2024/2025 þegar liðið varð bæði Íslands- og bikarmeistari.

,,Einar er hrikalega fær þjálfari sem hefur alltaf náð því besta úr sínum mannskap og er með hrikalega spennandi lið í höndunum fyrir næsta tímabil. Við óskum Fram og Einari til hamingju með samninginn og áframhaldandi samstarf," segir enn fremur í tilkynningunni frá Fram.

Fram endaði í 7.sæti Olís-deildarinnar á síðustu leiktíð og féll úr leik í 8-liða úrslitum úrslitakeppninnar, 2-0 eftir tap gegn FH.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top