Elżbieta Kowal hefur framlengt samningi sínum við karlalið Víðis út komandi tímabil og stýrir því liðinu áfram á næstu leiktíð. Víðir í Garði leikur í Grill66-deildinni í fyrsta skipti í sögu félagsins á næstu leiktíð eftir að hafa unnið sér inn þátttöku rétt í deildinni á síðustu leiktíð. ,,Eftir sterkt tímabil, þar sem liðið vann sig upp um deild og leikur í Grill-66 deild karla á komandi tímabili, heldur samstarfið áfram af fullum krafti. Elzbieta hefur sett sterkan svip á félagið með metnaði, aga og góðum liðsanda. Undir hennar stjórn hefur liðið tekið stór skref fram á við, bæði innan vallar sem utan, og framlengingin er skýr staðfesting á þeirri uppbyggingu sem á sér stað innan Víðis. Við erum ekki að fara neitt – við ætlum okkur stóra hluti," segir í tilkynningunni frá Víði. „Ég er virkilega spennt að halda áfram með þennan hóp. Við erum að byggja upp eitthvað sérstakt hér og ég trúi því innilega að það besta sé enn framundan. Við fórum upp um deild og nú tekur við enn meiri vinna. Við ætlum okkur stóra hluti á næsta tímabili og ég get ekki beðið eftir að halda áfram með leikmönnum, starfsfólki og stuðningsmönnum félagsins,“ segir Elzbieta. ,,Markmiðin fyrir komandi tímabil eru sett hátt. Áframhaldandi uppbygging, sterkur kjarni og skýr sýn gera það að verkum að Víðir mætir galvaskt til leiks í Grill66 deild karla. Það er spennandi tími framundan hjá félaginu og við hvetjum alla stuðningsmenn til að mæta og standa með liðinu okkar. Við bjóðum Elzbietu hjartanlega velkomna áfram og hlökkum til að takast á við næsta tímabil saman," segir ennfremur í tilkynningunni frá Víði.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.