Stjórn evrópska handknattleikssambandsins (EHF) hefur staðfest niðurstöðu matsnefndar um umsóknir félaga um sæti í Meistaradeild Evrópu tímabilið 2026/27. Þar kemur fram að Íslandsmeistarar Vals hafi ekki fengið samþykkta umsókn sína um uppfærslu í keppnina. Valur var eitt af 16 félögum sem sóttu um aðild í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð en 13 félög fengu sæti í keppnina auk þeirra 11 félaga sem höfðu nú þegar unnið sér inn þátttökurétt í keppninni. Mikil breyting verður á keppni karla á næsta tímabili en liðum verður fjölgað úr 16 í 24. Keppt verður í sex fjögurra liða riðlum. Keppnisfyrirkomulag kvenna helst hins vegar óbreytt, þar sem 16 lið verða áfram í tveimur átta liða riðlum. Þau þrjú félög sem sóttu um þátttöku í Meistaradeild Evrópu en fengu ekki aðild voru auk Vals, Tatabanya frá Ungverjalandi og Elverum frá Noregi. Þrjú Íslendingafélög fengu uppfærslu í Meistaradeild Evrópu í dag, Skanderborg frá Danmörku þar sem Kristján Örn Kristjánsson leikur, Porto frá Portúgal þar sem Þorsteinn Leó Gunnarsson leikur og IFK Kristianstad þar sem Einar Bragi Aðalsteinsson, Andri Erlingsson og Baldur Fritz Bjarnason leika á næstu leiktíð auk þess sem Gunnar Steinn Jónsson verður nýr aðstoðarþjálfari liðsins. Valur tekur þess í stað þátt í riðlakeppni Evrópudeildarinnar ásamt FH en Haukar hafa einnig sótt um aðild í riðlakeppni Evrópudeildarinnar en það skýrist síðar í vikunni. Dregið verður í riðla fyrir tímabilið 2026/27 föstudaginn 26. júní í höfuðstöðvum EHF í Vínarborg. Gert er ráð fyrir því að Meistaradeild Evrópu hefjist 9. og 10. september. Ljóst er að þrjú dönsk lið taka þátt í Meistaradeildinni á næstu leiktíð auk þriggja félaga frá Þýskalandi og Frakklandi. Þetta eru félögin sem höfðu þegar fengið keppnisrétt í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð:
HC Zagreb
Aalborg Håndbold
Barça
Paris Saint-Germain
SC Magdeburg
One Veszprém HC
Kolstad Handball
Industria Kielce
Sporting Clube de Portugal
CS Dinamo Bucuresti
MT Melsungen (Sigurvegarar Evrópudeildarinnar 25/26)
Félög sem fengu samþykkta uppfærslu í Meistaradeildina
Skanderborg Aarhus
GOG
HBC Nantes
Montpellier Handball
Füchse Berlin
OTP Bank – PICK Szeged
HC Vardar 1961
Orlen Wisla Plock
FC Porto
RK Celje Pivovarna Lasko
RK Partizan AdmiralBet
HC Kriens-Luzern
IFK Kristianstad

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.