Íslendingalið í Meistaradeildinni á næstu leiktíð
Blomberg-lippe

Stjórn evrópska handknattleikssambandsins (EHF) hefur staðfest niðurstöðu matsnefndar um umsóknir félaga um sæti í Meistaradeild Evrópu tímabilið 2026/27. 

Áfram verða sextán félög sem taka þátt í Meistaradeild Evrópu kvennamegin en miklar breytingar verða á karla keppninni þar sem fjölgað verður úr sextán liðum í 24.

Valur fékk ekki sæti í Meistaradeildinni

Dregið verður í riðlakeppni Meistaradeildarinnar næstkomandi föstudag.

Ljóst er að Íslendingaliðið, Blomberg-Lippe leikur í Meistaradeildinni á komandi tímabili eftir að hafa orðið þýskur meistari eftir sigur á Dortmund í úrslitaeinvíginu. Á næsta tímabili leika með Blomberg-Lippe þær Díana Dögg Magnúsdóttir og Elín Rósa Magnúsdóttir en Andrea Jacobsen gengur í raðir ÍBV í sumar.

Sjö félög sóttu um sex laus sæti í Meistaradeildina að þessu sinni og var norska félagið, Molde það félag sem dró stuttastráið og fékk ekki þátttökusæti í keppnina á næstu leiktíð.

Félög sem höfðu unnið sér inn þátttöku í Meistaradeildinni:
HC Podravka 
Team Esbjerg 
Brest Bretagne Handball 
Metz Handball 
HSG Blomberg-Lippe
Györi Audi ETO KC 
OTP Group Budućnost 
Storhamar Håndball Elite 
Gloria Bistrita 
RK Krim OTP Group Mercator 
 
Félög sem fengu uppfærslu í Meistaradeildina:
Odense Håndbold 
Nykøbing Falster Håndbold 
BV Borussia Dortmund 
FTC 
Sola Handballklubb 
CSM Bucuresti
 
Félag sem fékk ekki uppfærslu í Meistaradeildina:
Molde Elite

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top