Íslenska karla landsliðið skipað leikmönnum 20 ára og yngri heldur til Færeyja um helgina og leikur þar tvo vináttulandsleiki við Færeyinga í undirbúningi þjóðanna fyrir Evrópumótið sem hefst í byrjun júlí. Íslenska landsliðið flýgur til Færeyja í dag og leikur svo tvo vináttulandsleiki um helgina, annan á laugardag og seinni á sunnudag. Fyrri leikurinn fer fram í þjóðarhöllinni á Hálsi og sá seinni í Skála. Þjálfarar U20 ára landsliðsins eru þeir Ágúst Jóhannsson og Maksim Akbachev en Ísland er í riðli með Austurríki, Lettlandi og Spánverjum á Evrópumótinu sem fram fer í Rúmeníu. Leikir Íslands á EM: Tvö efstu liðin í riðlinum komast áfram í milliriðil. Markmenn: Alexander Ásgrímsson , ÍR Jens Sigurðarson, Valur Aðrir leikmenn: Andri Erlingsson, ÍBV Antoine Pantano, Grótta Ágúst Guðmundsson, HK Bessi Teitsson, Grótta Birgir Leó Stefánsson, Haslum Dagur Leó Fannarsson, Valur Daníel Montoro, Valur Elís Þór Aðalsteinsson, ÍBV Harri Halldórsson, Afturelding Ingvar Dagur Gunnarsson, FH Jens Bragi Bergþórsson, KA Jökull Blöndal Björnsson, ÍR Magnús Jónatansson, KA Stefán Magni Hjartarson, Afturelding
8.júlí: Ísland - Austurríki
9.júlí: Ísland - Spánn
11.júlí: Ísland - Lettland
Hópurinn er eftirfarandi:

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.