Ýmis vandamál sem voru stundum þreytandi
TTH Holstebro

Valsarinn, Benedikt Gunnar Óskarsson segist afar spenntur fyrir því að hefja nýjan kafla á ferlinum eftir að hafa gengið til liðs við danska úrvalsdeildarfélagið TTH Holstebro á dögunum.

Benedikt kemur til félagsins frá norska stórliðinu Kolstad þar sem hann lék síðustu tvö tímabil og varð norskur meistari í bæði skiptin. Hann segir margt hafa heillað sig við TTH Holstebro.

„Mér líst mjög vel á þetta. Þetta er toppklúbbur í dönsku deildinni sem leikur einnig í Evrópudeildinni. Það var margt við félagið sem heillaði mig og ég tel að þar séu góð tækifæri fyrir mig til að þróa minn leik enn frekar,“ sagði Benedikt.

Hann gerir sér grein fyrir því að samkeppnin um sæti í liðinu verði hörð, en segir markmiðið skýrt.

„Ég þarf að berjast fyrir mínu sæti, reyna að spila sem mest og hjálpa liðinu að vinna leiki.“

Benedikt gerir upp tíma sinn hjá Kolstad með jákvæðum hætti þrátt fyrir að ýmislegt hafi gengið á innan félagsins.

„Þetta voru mjög góð tvö ár og mér leið frábærlega í Kolstad. Það var þó mikið upp og niður og ýmis vandamál í kringum félagið sem voru stundum þreytandi. Ég lærði hins vegar gríðarlega mikið, bæði innan vallar og utan og bætti mig mikið sem leikmaður.“

Hann segir að það hafi ekki komið til greina að vera áfram hjá Kolstad. Ástæðan er einföld:

„Félagið vildi ekki gera nýjan samning við mig.“

Benedikt hlakkar til að spreyta sig í dönsku úrvalsdeildinni sem hann telur henta sínum leikstíl vel.

„Ég er mjög spenntur fyrir því að spila í dönsku deildinni. Þetta er mjög sterk og hröð deild sem ég held að henti mér vel.“

Í Holstebro hittir Benedikt fyrir samlanda sinn Jóhannes Berg Andrason sem gekk í raðir félagsins síðasta sumar en saman léku þeir upp öll yngri landslið Íslands og þá er Arnór Atlason þjálfari liðsins.

„Auðvitað er þægilegt að vita af Jóa þarna. Ég þekki hann vel og það verður gaman að spila með honum. Svo er líka bara spennandi að spila fyrir Arnór.“

Aðspurður hvort til greina hafi komið að ganga til liðs við Val sagði Benedikt það ekki hafa verið raunin en Benedikt Gunnar var sterklega orðaður við heimkomu og sagði Ágúst Jóhannsson þjálfari Vals meðal annars í viðtali við Handkastið í síðasta mánuði hafa verið í reglulegum samskiptum við Benedikt meðan hann var að leita sér að nýju liði.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top